Eyðimörk. Hún er aðeins helmingur stærðar Jarðar en er með meira eyðimerkurland. Samt er Mars sú pláneta sem léttast væri að búa á. Alveg eins og á Jörðinni eru þar árstíðir, 24 klukkutíma dagar og þar verður ekki allt of heitt, eða allt of kalt. Við ættum samt ekki að vera að fara þangað, við viljum ekki trufla marsbúana. Það gæti ennþá verið að þeir séu til. NASA er að fara að senda menn þangað á milli 2025 og 2030. Og svo er líka líklegra að aumingja marsbúarnir séu ekki til lengur, það er ekkert vatn þarna lengur, en samt eru merki um mikil flóð fyrir mörgum, mörgum árum. En við höldum ennþá í vonina.