Merkúríus er næst sólu og lang minnst, hún er bara aðeins stærri en tunglið okkar. Hún er kannski ekki besti staður til að búa á þar sem að dagarnir yfir 400 gráðu heitir og næturnar eru undir 180 gráðu kaldar. Hver sólarhringur er líka 59 jarðdagar, en árið bara 88 jarðdagar. Það er ólíklegt að sé líf á Merkúríus, en það gæti verið að þar sé vatn, í jöklum, djúpt ofan í risastórum gígum, sem hafa myndast við þegar loftsteinar skella á plánetuna.